Mætti í strigaskóm í höllina

Emma Thompson ögrar gömlum gildum um skóbúnað kvenna.
Emma Thompson ögrar gömlum gildum um skóbúnað kvenna. AFP

Hvítir strigaskór hafa verið í tísku undanfarin ár en strigaskórnir eru ekki bara fyrir ungt fólk á Instagram. Vilhjálmur Bretaprins veitti Óskarsverðlaunaleikkonunni Emmu Thompson heiðursnafnbót í Buckingham-höll í vikunni og vakti skóbúnaður hinnar 59 ára gömlu leikkonu mikla athygli. 

Thomson var í hvítum strigaskóm við fallega bláa buxnadragt frá Stellu McCartney. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Thompson vekur athygli fyrir að ögra gömlum gildum um skóbúnað kvenna. 

Emma Thompson í hvítu strigaskónum sínum.
Emma Thompson í hvítu strigaskónum sínum. AFP

Á Golden Globe-verðlaununum árið 2014 mætti hún á svið berfætt með Christian Louboutin-hælana sína í annarri hendi og vínglas í hinni. Grínaðist hún með að rauði sólinn á hælunum væri blóð hennar. Þegar henni var afhent umslag með verðlaunahafanum sem hún var að kynna henti hún skónum aftur fyrir sig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál