Lady Gaga vekur gjarnan athygli fyrir klæðaburð sinn. Á þriðjudaginn var það þó ekki kjóll hennar sem átti sviðið eins og á Golden Globe-verðlaunahátíðinni um helgina. Það var stórundarlegur aukahlutur sem söng- og leikkonan bar sem stal senunni á galakvöldi í New York.
Gaga minnti á gamla Hollywood-stjörnu í glitrandi svörtum kjól frá Ralph Lauren. Kjóllinn sem var með hálsmáli sem minnti á jakkaföt var töluvert einfaldari en skrautlegur aukahluturinn sem hún bar. Fólk virðist heldur ekki átta sig á hvaða hlutverki aukahluturinn átti að þjóna. Var þetta veski eða bara skraut? Var Gaga kannski mætt með fuglinn sinn?