Geislaði með kúlu í rauðu

Harry og Meghan heimsóttu bæinn Birkenhead í frakka og kápu.
Harry og Meghan heimsóttu bæinn Birkenhead í frakka og kápu. AFP

Harry og Meghan voru vel klædd þegar þau heimsóttu bæinn Birkenhead á Englandi í gær, þriðjudag. Vel sást í myndarlega óléttukúlu hertogaynjunnar í þröngum fjólubláum kjól sem hún klæddist í heimsókninni en Meghan er sögð hafa ljóstrað því upp að hún ætti von á sér í apríl. 

Samkvæmt Daily Mail er kápan sem er frá kanadíska merkinu Sentaler talin ný í safni Meghan og kostar 1.085 pund eða um 170 þúsund íslenskar krónur. Meghan hefur þó áður sést í eins kápu en á jólunum árið 2017 var hún í eins kápu brúnni á litinn.

Fjólublái kjóllinn með klaufinni frá Babaton by Aritizia var hins vegar ódýrari og sagður kosta einungis 107 pund eða um 16 þúsund krónur. Rauðu hælarnir fullkomnuðu síðan útlitið. 

Meghan var í rauðri káðu og rauðum skóm.
Meghan var í rauðri káðu og rauðum skóm. AFP
Fjólublár kjóllinn kom vel út.
Fjólublár kjóllinn kom vel út. AFP
Harry og Meghan kíktu á úrvalið í búðinni.
Harry og Meghan kíktu á úrvalið í búðinni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál