Þetta er framtíðin í förðun

Shiseido setti nýverið á markað endurnýjaða förðunarlínu sem skipt er …
Shiseido setti nýverið á markað endurnýjaða förðunarlínu sem skipt er upp eftir áferðum.

Ég fann sjálfa mig hangandi á glugga vörumerkjastjóra Shiseido í von um að sjá nýju förðunarlínu japanska merkisins áður en hún var sett á markað en ég þurfti að bíða aðeins lengur. Loksins var hulunni svipt af herlegheitunum og á skotstundu fannst mér Shiseido skjótast á stjörnuhimininn sem framúrstefnulegasta förðunarmerkið á markaðnum. Gleymdu gamaldagsskiptingu eins og varalitir, augnskuggar og kinnalitir. Shiseido flokkar allt eftir áferðum og það er þitt að ákveða hvar á andlitið, eða jafnvel líkamann, þú setur vöruna. Púður, blek, gel og ljómi eru nýju flokkarnir og einkennast allar vörurnar af módernisma, þyngdarleysi og björtum litatónum.

Shiseido Essentialist Eye Palette er augnskuggapalletta sem kemur í nokkrum …
Shiseido Essentialist Eye Palette er augnskuggapalletta sem kemur í nokkrum litasamsetningum sem eru hver annarri fallegri.

Púður

Í þessum flokki má finna vörur sem einkennast af þyngdarlausri púðuráferð og langvarandi endingu á húðinni. Shiseido Essentialist Eye Palette er augnskuggapalletta sem samanstendur af fjórum augnskuggum og kemur í fjölmörgum litasamsetningum. Shiseido Minimalist Whipped Powder Blush er ein áhugaverðasta formúla seinni tíma en þetta er þeyttur kinnalitur og er áferðin eins og ský.

Shiseido Minimalist Whipped Powder Blush er ein framúrstefnulegasta formúla sem …
Shiseido Minimalist Whipped Powder Blush er ein framúrstefnulegasta formúla sem hefur komið á förðunarmarkað í lengri tíma.
Shiseido Inner Glow Cheek Powder.
Shiseido Inner Glow Cheek Powder.

Shiseido Inner Glow Cheek Powder er púðurkinnalitur sem einkennist af sterkri litaformúlu og síðast en ekki síst skal nefna Shiseido Modern Matte Powder Lipstick, einstök mött varalitaformúla.

Shiseido Modern Matte Powder Lipstick.
Shiseido Modern Matte Powder Lipstick.

Blek

Í blek-flokknum sækir Shiseido innblástur til japanskrar ritlistar þegar kemur að áferð og hönnun. Shiseido Kajal InkArtist Pencil er augnlínufarði og augnskuggi sem einnig má nota á augabrúnirnar ef maður er í listrænu skapi. Þessi vara býr bæði yfir silkimjúkri kremaðri formúlu, sem er vatnsheld, og svampur er á endanum til að dreifa úr litnum.

Shiseido Kajal InkArtist Pencil, Shiseido Microliner Ink og Shiseido Archliner …
Shiseido Kajal InkArtist Pencil, Shiseido Microliner Ink og Shiseido Archliner Ink Eyeliner.

Shiseido Microliner Ink er örmjór augnlínufarði og býr yfir tækni sem umbreytir formúlunni í fljótandi form við ásetningu. Ein af mínum uppáhaldsvörum er svo Shiseido Archliner Ink Eyeliner en þessi fljótandi augnlínufarði kemur í virkilega vel hönnuðum umbúðum. Það hefur aldrei verið jafnauðvelt að setja á sig augnlínufarða.

Hægt er að nota Shiseido Kajal Ink Artist Pencil sem …
Hægt er að nota Shiseido Kajal Ink Artist Pencil sem augnlínufarða, augnskugga eða á augabrúnirnar.

Shiseido Lacquerink Lip Shine býr yfir sterkum lit og gljáa sem endist vel á vörunum. Einstök blanda af olíum næra varirnar og skapa mýkt.

Shiseido Lacquerink Lip Shine inniheldur blöndu af nærandi olíum.
Shiseido Lacquerink Lip Shine inniheldur blöndu af nærandi olíum.

Gel                             

Shiseido Visionary Gel Lipstick er mjög áhugaverð formúla en þessi gel-varalitur virðist bráðna yfir varirnar og helst á í allt að sex klukkustundir. Full þekja og bjartir litatónar einkenna þessa formúlu sem á heima í öllum snyrtiveskjum.

Shiseido Visionary Gel Lipstick veitir fulla þekju og endist vel.
Shiseido Visionary Gel Lipstick veitir fulla þekju og endist vel.

Ljómi

Shiseido Aura Dew Highlighter kemur í þremur litatónum og má nota þennan ljóma hvar sem er á andlitinu til að skapa aukinn ferskleika. Formúlan helst á í allt að tólf klukkustundir.

Shiseido Aura Dew Highlighter er ljómi sem nota má á …
Shiseido Aura Dew Highlighter er ljómi sem nota má á augu, kinnbein og varir.


Fylgstu með á samfélagsmiðlum:

Instagram: Snyrtipenninn

Facebook: Snyrtipenninn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál