Gulur er litur páskanna og þá er um að gera að klæða sig upp í gult. Það getur verið hægara sagt en gert að klæða sig í gul föt án þess að líta út eins og gulur ungi ofan á páskaeggi. Stjörnurnar út í heimi hafa gert nokkrar tilraunir með gul föt frá toppi til táar og reyndar tekist ágætlega til.
Í byrjun apríl mætti fyrirsætan og leikkonan Emily Ratajkowski í fallegum gulum silkikjól í brúðkaup tískukóngsins Marc Jacobs og eiginmanns hans, Char Defrancesco, í New York. Klæðaburður brúðkaupsgestanna þótti bera af og því má segja að tískulöggur hafi gefið grænt ljós að gult í vor.
Hér má finna fleiri gul dress sem Smartland tók saman fyrir páskana.
Alicia Vikander í gulum kjól á Óskarnum 2016.
mbl.is/AFP
Meghan hertogaynja hefur prófað að klæðast gulu síðan hún gekk í bresku konungsfjölskylduna í fyrra.
mbl.is/AFP
Amal Clooney þykir afar smekkleg en hún valdi gult fyrir brúðkaup og Harry og Meghan í fyrra.
mbl.is/AFP
Ofurfyrirsætan Gigi Hadid sýndi gulan gegnsæjan kjól þegar Fendi sýndi haust- og vetrarlínu sína fyrir veturinn 2019 til 2020 fyrr á árinu.
mbl.is/AFP
Emma Stone klæddist gulu í tengslum við myndina La La Land.
mbl.is/AFP
Reese Witherspoon í gulu í Golden Globe-partý árið 2017 með vinkonu sinni Nicole Kidman.
mbl.is/AFP
Natalie Portman ólétt í gulu árið 2017.
mbl.is/AFP
Blake Lively tekur sig vel í gulu frá toppi til táar árið 2017.
skjáskot/Instagram
Söngkonan Meghan Trainor á verðlaunahátíð í lok mars.
AFP