Tónlistarkonan Rihanna lét sjá sig á BET-verðlaunahátíðinni um helgina. Rihanna var klædd í sjúklega töff leðurbuxur og leðurjakka í stíl. Fötin eru að sjálfsögðu úr hennar eigin línu, Fenty.
Breska söngkonan Ella Mai veit nákvæmlega hvað þykir inn í dag, en hún klæddist skærgrænni dragt með sólgleraugu í stíl. Rapparinn Cardi B fékk sama minnismiða og Ella Mai og var í skærgrænum kjól með risavöxnum axlapúðum.
Stórstjarnan Mary J. Blige tók lagið í einstaklega flottum hvítum fötum. Hin rísandi stjarna Lizzo steig einnig á svið og var brúðkaupsþema í atriðinu.