Sjampó Bláa lónsins er á lista tískutímaritsins Vogue yfir þau sjampó sem þykja góð fyrir þurrt hár. Í umfjöllun Vogue er fjallað um þann vanda sem fólk með þurrt hár glímir við og hvernig það sé sérstaklega erfitt að halda hárinu röku og vel nærðu yfir vetrartímann.
Hefðbundin sjampó innihaldi mörg hver efni eins og alkóhól, súlfat og sílikon sem geta valdið hárþurrki. „Sem betur fer, á ört stækkandi markaði, er hins vegar til sjampó fyrir þurrt hár sem byggir á nýjustu tækni og úthugsuðum innihaldsefnum sem viðhalda náttúrulegum raka hársins,“ segir meðal annars í umfjöllun Vogue.
Umfjöllunin er ekki kostuð heldur eru vörur í umfjölluninni valdar sérstaklega af ritstjórn Vogue.