Sumarið er að koma hjá H&M

Línan verður fáanleg hér á Íslandi frá og með 20. …
Línan verður fáanleg hér á Íslandi frá og með 20. febrúar. Ljósmynd/H&M

Í fallegu húsi í Beverly Hills með útsýni yfir Los Angeles borg og út á haf frumsýndi H&M nýju Studio SS20 línuna sem er hönnuð með frjálslegu nútímakonuna í huga. Fötin skörtuðu sínu fegursta í fallegu umhverfi þar sem lýsingin í kringum húsið endurspeglaði litapallettu línunnar. Boðsgestir íklædd fötum út línunni, þar á meðal Jourdan Dunn, Paloma Elsesser, Billie Lourd og Selah Marley, skoðuðu nýju línuna á meðan loftfimleikafólk lék listir sínar og Lykke Li lék undir ljúfa tóna. H&M Studio SS20 línan verður fáanleg í Smáralind frá 20. febrúar.

„Mantra SS20 línunnar er frelsi en línan er stútfull af lausnum fyrir konuna sem stundar brimbretti, klifur eða göngur.Línan er bæði grófgerð og elegant, náttúruleg efni í bland við sérstæð hráefni líkt og glansandi metal og nútímalegir aukahlutir. Viðskiptavinum okkar er frjálst að para saman Studio flíkunum á alla vegu og þannig gera línuna að sinni eigin,“ segir Ann-Sofie Johansson, listrænn ráðgjafi hjá H&M.

Eftir innblástur frá rannsóknarleiðangri til sænsku eyjunnnar Gotlands varð hin afslappaða brimbrettastelpa fyrirmynd SS20 línunnar. Lykilflíkurnar eru rafbleikur endurunninn pólýester kjóll, stuttur kalksteinslitaður hörjakki, víðar buxur, hekluð peysa ásamt grófum leður öklastígvélum. Litapallettan samanstendur af skærbleikum, skærgrænum, dökkbláum og kremuðum tónum.

Ljósmynd/H&M
Ljósmynd/H&M
Ljósmynd/H&M
Ljósmynd/H&M
Ljósmynd/H&M
Ljósmynd/H&M
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál