Ilmvatnslína fyrir afreksfólk í íþróttum

Íþróttamerkið Adidas er komið með splunkunýja ilmvatnslínu sem þróuð var á rannsóknarstofu. Hvers vegna var það gert? Jú til þess að fá íþróttafólkið til að mæta til leiks með rétta hugarfarið og ýta því lengra. 

Línan inniheldur fjórar ilmtegundir fyrir herra og dömur: STRIKE, UNLEASH, CHARGE og UPLIFT.

Það hefur lengi verið vitað að lykt getur haft áhrif á hugarfar og skap og svo kveikir ilmur í tilfinniningum í brautum heilans. Í samstarfi við íþróttafólk og rannsóknarmenn bjó ADIDAS til þessa einstöku ilmvatnslínu.

STRIKE er hannaður með karlkyns fótboltaspilara í huga. Þessi ilmur opnast með grænum ferskum nótum af epli og bergamot. Lavenderolía kemur líka við sögu og birki. Sérfræðingar segja að þeir sem setji þennan ilm á sig skori meira!

UNLEASH er hannaður fyrir konur á hreyfingu. Ilmurinn inniheldur keim af blóðappelsínu, mangó og mandarínu en þessar tegundir eiga það sameiginlegt að þær örva skynfærin. Sedrusviður kemur líka við sögu ásamt súkkulaði og muski. Sérfræðingar segja að ilmurinn veki magnaðar tilfinningar og auki styrkinn svo um munar. 

CHARGE er innblásinn af hlaupurum heimsins. Um er að ræða hressandi ilm sem inniheldur smá greip, sítrus og sterka viðartóna. Þessi blanda inniheldur keim af eplum og einiberjum ásamt viðarilmi. Þeir sem úða ilminum á sig finna fyrir jákvæðri orku sem nýtist vel á hlaupum.

UPLIFT er fyrir hinn kraftmikla kvenkyns hlaupara sem gefst aldrei upp. Í ilminum er að finna sítruskeim ásamt rósaávaxtailmi sem veitir hlauparanum ennþá meiri innblástur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál