Ef það er eitthvað sem þú ættir að hleypa inn í líf þitt í sumar þá er það sumarlegur kjóll. Hann þarf ekki að vera dýr eða flókinn, heldur léttur, stór og flaksandi þannig að þú upplifir frelsi sumarsins. Það að geta sprangað um berleggjuð í kjól gefur lífinu gildi. Hægt er að nota stóran víðan kjól við mörg tækifæri. Það má vera í honum í öllu sínu veldi við strigaskó á virkum dögum, í himinháum hælum um helgar og fara í mismunandi jakka yfir. Þannig er hægt að klæða kjólinn upp og niður og allt þar á milli. Ég mæli eindregið með því að fólk noti sparifötin sín hversdags því tilefni til að klæða sig upp á eru kannski ekki alltaf á hverju strái í lífnu. Ef fallegir kjólar gleðja þig þá ættir þú að nota hvert tækifæri til að vera í kjól – sama hvað aðrir segja!