Þessi varalitur kemur þér í gegnum hversdaginn

Japanska snyrtivörumerkið Shiseido sem stofnað var árið 1872 gerir vandaðar snyrtivörur. Einn fallegasti varalitur vetrarins er Shisheido Modern Matte Powder-liturinn númer 502.

Hann endist í allt að átta klukkustundir á vörunum og er einstaklega smekklegur litur fyrir konuna sem velur vandaðar vörur á andlit sitt.

Liturinn hentar vel fyrir allar húðgerðir. 

Fegurðardrottningin Katarina Rodriguez er ein þeirra sem elska litinn og ber hann einstaklega vel. Liturinn fer vel við dökk hárið og hægt er að leika sér með varalitinn. Hann hentar vel hversdags en svo má líka nota hann spari með því að mála augun örlítið meira og setja dökkan vatnsheldan blýant inn í vatnslínu augnanna. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál