Tónlistarkonan og tískuhönnuðurinn Rihanna er byrjuð að auglýsa nýja nærfatalínu, Savage x Fenty, fyrir valentínusardaginn. Rihanna kemur sjálf fyrir í auglýsingunum, sem eru ekki af verri endanum.
Nærfötin eru sjóðandi heit eins og flestar nærfatalínur sem hún hefur sent frá sér. „Gerðu það sem þú elskar mest. Láttu allt snúast um þig og maka þinn. Ef það lætur þér líða vel og þér finnst þú vera kynþokkafullt, gerðu það þá bara,“ skrifaði Rihanna við auglýsinguna.