Demi Moore vakti mikla athygli á tískusýningu Fendi á dögunum. Andlit hennar þótti talsvert breytt og hún óvenju kinnfiskasogin á að líta. Telja margir að hún hafi farið í fegrunaraðgerðir til þess að ná fram þessu nýja útliti. Aðrir hafa kennt förðunarfræðingnum hennar um.
Skemmst er að minnast þess að Moore neitaði harðlega að hafa gengist undir rándýrar lýtaaðgerðir fyrir myndina Charlie's Angels.
Moore sem er 58 ára hefur almennt þótt bera aldurinn vel en sitt sýnist hverjum um hennar nýjasta útspil. Margir á samfélagsmiðlum segja hana óþekkjanlega.
„Þetta líkist henni ekki neitt. Ef þetta er Demi Moore þá er lýtalæknirinn sem gerði henni þetta algjör skottulæknir,“ sagði virkur í athugasemdum.