Jennifer Aniston komin með ljóst hár

Jennifer Aniston er með ljósara hár en oft áður.
Jennifer Aniston er með ljósara hár en oft áður. Skjáskot/Instagram

Uppáhaldsvinkona allra, Jennifer Aniston, er komin með ljóst ár. Aniston birti mynd af sér á Instagram með hárgreiðslumanninum Chris McMillan og er hárið töluvert ljósara en það hefur verið áður. 

Fólk kýs oft að lýsa á sér hárið þegar það sumarið nálgast. Ljósa hárið tengist þó líklega því að Aniston undirbýr sig nú fyrir tökur á annarri þáttaröð af þáttunum The Morning Show en hún hlaut SAG-verðlaun fyrir frammistöðu sína í þáttunum í fyrra. 

Aniston er þekkt fyrir að skarta fallegu karamellubrúnu hári og hefur hár hennar iðulega ratað í tískutímarit í gegnum árin. Þegar hún lék í þáttunum Friends á sínum tíma fóru ófáar konur með mynd af henni í klippingu og báðu um eins hár. 

Jennifer Aniston er þekkt fyrir að skarta fallega karamellubrúnu hári.
Jennifer Aniston er þekkt fyrir að skarta fallega karamellubrúnu hári. AFP



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál