10 mínútna vorförðun sem breytir öllu

Kristjana Elva Karlsdóttir sat fyrir hjá Natalie.
Kristjana Elva Karlsdóttir sat fyrir hjá Natalie.

Natalie Kristín Hamzehpour skólastjóri Makeup Studio Hörpu Kára farðaði Kristjönu Elvu Karlsdóttur með einfaldri vorförðun sem tók ekki nema tíu mínútur.

Hér sést vel hvernig augnlokið var skyggt.
Hér sést vel hvernig augnlokið var skyggt.

„Það er ekkert mikilvægara í förðun en góð húðumhirða. Ég byrja allaf á Nip+Fab Glycolic Fix Daily Cleansing Pads til að fjarlæga þurrk og mýkja yfirborð húðarinnar. Síðan veiti ég henni djúpan raka með Clarins Plant Gold-kreminu. Kremið er létt en inniheldur hreina ilmkjarnaolíu sem veitir húðinni mikinn raka og ljóma og hentar einstaklega vel undir farða,“ segir Natalie.

Hún er mjög hrifin af Clarins Skin Illusion-farðanum af því hann er léttur og þunnur og segir Natalie að hann fullkomni húðina. „Farðinn er með miðlungsþekju og mjög eðlilega áferð og hann fyllir í línur og húðholur. Ég nota Clarins Face Brush og blanda honum vel í húðina. Áferðin verður mött en náttúruleg og hentar vel við þessa förðun,“ segir hún.

Til að fela bláma undir augunum og lýsa augnsvæðið notaði Natalie Shiseido Synchro Skin-hyljarann sem veitir góða þekju en er á sama tíma léttur. „Hyljarinn sest ekki í línur og helst á allan daginn. Til að koma í veg fyrir að húðin fari að glansa yfir daginn púðra ég létt yfir með Shiseido Synchro Skin Invisible Silk-púðrinu sem mattar og jafnar húðáferð.

Á kinnarnar notaði ég Clarins Glow 2 Go-stiftið í litnum 02 Golden Peach. Önnur hliðin er fallegur ferskjulitaður kinnalitur en hin er ljómandi bronzer. Mér finnst langbest að taka vöruna á bursta og þrýsta henni létt í húðina. Bronserinn nota ég frekar ofarlega á kinnbein til að gefa húðinni heilbrigðan og sólkysstan ljóma.“

Natalie segir að augnförðunin sé alls ekki flókin og erfið þótt hún líti út fyrir að vera rándýr.

„Ég byrja á litnum fyrir ofan til hægri og ramma inn allt augað og leyfi mér að blanda hann upp á augabrúnabein. Liturinn er mildur og blandast mjög auðveldlega. Síðan tek ég litinn fyrir neðan til hægri og þrýsti honum með flötum bursta á augnlokið í innri og ytri krók en leyfi miðjunni að vera auð. Þetta geri ég að ofan og neðan. Síðan tek ég deksta litinn og þrýsti honum á sömu staði en bara rétt í rótina. Að lokum tek ég sanseraða litinn fyrir ofan til vinstri með fingri og þjappa honum rétt yfir miðju augnloksins. Ég klára förðunina með góðum maskara, ég notaði Guerlain mad eyes,“ segir hún og bætir við:

„Þar sem augun eru í aðalhlutverki í þessari förðun fannst mér mikilvægt að velja varalit sem tónar vel við litina án þess að vera of sterkur. Modern Matte Lipstick frá Shiseido í lit 505 Peep Show er fullkominn nude með léttum ferskjubleikum tón. Varaliturinn er mattur en á sama tíma rakagefandi og auðvitað má alltaf toppa hann með smá gloss til að fá meiri glans í varirnar.“

Natalie Kristín Hamzehpour skólastjóri Makeup Studio Hörpu Kára.
Natalie Kristín Hamzehpour skólastjóri Makeup Studio Hörpu Kára.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál