Katrín í íslenskri hönnun í Landmannalaugum

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í íslenskri lopapeysu í Landmannalaugum.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í íslenskri lopapeysu í Landmannalaugum. Ljósmynd/Instagram

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er þekkt fyrir að vera gefin fyrir íslenska hönnun og sló ekki feilspor í Landmannalaugum á dögunum. Þar klæddist hún ákaflega fallegri íslenskri lopapeysu.

Peysan er keypt hjá Handprjónasambandi Íslands sem, eins og nafnið gefur til kynna, leggur mikið upp úr íslenskum handprjónuðum lopapeysum. Peysan heitir Sæunn og er í fallegum íslenskum sauðalitum, hvítum, brúnum og svörtum. Mynstrið hannaði Guðrún Sveinsdóttir.

Sæunni má finna í öðrum litum í vefverslun Handprjónasambandsins á 31.300 krónur. Hún er þó uppseld um þessar mundir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál