Fyrirsætan Chrissy Teigen klæddist engri Sloggi brók með góðri teygju þegar hún greindi frá því að hún og eiginmaður hennar, John Legend tónlistarmaður, ættu von á barni.
Teigen klæddist brók frá Gucci sem kostar 520 bandaríkjadali eða um 70 þúsund íslenskar krónur.
Nærbuxurnar eru einstaklega flottar en þær eru uppháar og hálf gegnsæar. Eins brók má versla í vefverslun MyTheresa.
Teigen og Legend misstu fóstur haustið 2020 en fyrir eiga þau dótturina Lunu og soninn Miles.