„Kvíðin en spennt fyrir því að verða eðlilegri“

Fyrirsætan og förðunarfræðingurinn Lottie Tomlinson hefur látið leysa upp fyllingarefni …
Fyrirsætan og förðunarfræðingurinn Lottie Tomlinson hefur látið leysa upp fyllingarefni í vörum sínum og kinnum. Samsett mynd

Áhrifavaldurinn Lottie Tomlinson hefur ákveðið að láta leysa upp fyllingarefni í andliti sínu í von um „náttúrulegra“ útlit.

Hún deildi ákvörðun sinni með fylgjendum sínum á Instagram á dögunum og leyfði þeim að fylgjast með því þegar hún lét leysa fyllingarefnin upp, bæði í vörunum á sér en einnig í kinnunum. 

Nýorðin mamma

Lottie er með rúmlega fjórar milljónir fylgjenda á Instagram, en hún er fyrirsæta og förðunarfræðingur ásamt því að vera stofnandi fyrirtækisins Tanologist sem selur brúnkukrem. Hún tók nýverið á móti sínu fyrsta barni með fyrirsætunni Lewis Burton í ágúst síðastliðnum. 

View this post on Instagram

A post shared by LT 🍒 (@lottietomlinson)

„Þetta er að gerast“

„Þetta er að gerast. Ég er hjá Harley Street Injectables í dag til að láta leysa upp fyllingarefnin mín. Ég er kvíðin en spennt fyrir því að verða eðlilegri,“ skrifaði Tomlinson við myndir af sér.

Fyrirsætan er spennt fyrir nýju útliti sínu.
Fyrirsætan er spennt fyrir nýju útliti sínu. Skjáskot/Instagram

Til að leysa upp fyllingarefni er ensím sem kallast hayluronidase notuð, en efnið brýtur fyllingarefnið niður og flýtir þar með fyrir upplausnarferlinu sem myndi annars eiga sér stað með tímanum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál