Laufey heiðruð á forsíðu tískutímarits

Laufey Lín Jónsdóttir klæðist fötum frá ítalska tískuhúsinu MiuMiu á …
Laufey Lín Jónsdóttir klæðist fötum frá ítalska tískuhúsinu MiuMiu á forsíðunni. Samsett mynd

Laufey Lín Jónsdóttir, söngkona og lagahöfundur, prýðir forsíðuna á nýjasta hefti tímaritsins Female í Singapúr. Heftið, sem er titlað „The Celebrity Edition“, heiðrar nokkra listamenn Z-kynslóðarinnar sem þykja hafa skarað fram úr á liðnu ári. 

Djasssöngkonan var ljósmynduð af tískuljósmyndaranum Olivier Simille og klæddist fallegum flíkum frá ítalska tískuhúsinu Miu Miu. Laufey deildi myndum úr tökunni á Instagram-síðu sinni á þriðjudag. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem djasssöngkonan prýðir forsíðu á erlendu tímariti. Hún sat fyrir á forsíðumynd eins þekktasta tón­list­ar­tíma­rits í heimi, Billboard, fyrr á þessu ári. 

Ræddi við Elton John

Hin 24 ára gamla Lauf­ey er og hef­ur verið á sann­kallaðri sig­ur­för um heim­inn. Unga söng­kon­an var á dögunum gestur í hlaðvarpi stórstjörnunnar Eltons Johns, Rocket Hour.

Í þætt­in­um lof­sam­ar John tónlist Lauf­eyj­ar og hrós­ar henni í há­stert. Þau ræddu meðal ann­ars um yf­ir­stand­andi tón­leika­ferðalag henn­ar, en hún fór bein­ustu leið í tón­leika­ferðalag af Grammy-verðlauna­hátíðinni í Los Ang­eles þar sem hún hlaut sín fyrstu Grammy-verðlaun.

View this post on Instagram

A post shared by laufey (@laufey)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda