Einstakur stíll Tinu Kunakey

Tina Kunakey er vinsæl fyirsæta sem er með klassískan smekk …
Tina Kunakey er vinsæl fyirsæta sem er með klassískan smekk og einstakan fatastíl.

Fyrirsætan Tina Kunakey er tískufyrirmynd um víða veröld. Hún er með einfaldan vandaðan fatastíl sem hún blandar saman við götufatnað frá hinum helstu merkjum. Hún á sér tvenns konar útlit, annað er í anda áttunda áratugar síðustu aldar, en hitt er tímalaust útlit sem er óháð stund og stað.

Eftirfarandi atriði eru í hennar anda þegar kemur að tískunni:

Hárið

Tina Kunakey er óhrædd við að láta náttúrulega liði njóta sín þegar kemur að hárinu. Hún gerir meira úr því en minna þegar hún ákveður að hafa hárið stórt. Síðan þegar hún er að leitast við að vera klassísk sléttir hún hárið og hefur það í forgrunni. 

Hún er dugleg að næra hárið. Það er alltaf glansandi og vel snyrt.

View this post on Instagram

Grazie mille Venezia 👋🏽 big thank you to @twinsetofficial, @tiffanyandco and @marvi_marver !!!

A post shared by @ tinakunakey on Sep 6, 2017 at 3:45am PDT

Hversdagsfatnaður

Tina Kunakey er rétt rúmlega tvítug að aldri og klæðir sig eins og jafnaldrar hennar gera. Þegar hún er klædd í gallabuxur og peysu er eins og hún klæði sig óháð kyni. Hún er vanalega í töff peysum. Hún er á því að með því að vera með djörf skilaboð á fatnaðinum verji fólk sig fyrir alls konar hatri. Þegar hún er í strákalegum fatnaði tónar hún niður kynþokkann sem þykir töff að gera um þessar mundir. 

View this post on Instagram

no comments 😌 @diesel #DieselHateCouture the more hate you wear, the less you care

A post shared by @ tinakunakey on Oct 30, 2018 at 10:05am PDT

Lausar yfirhafnir og töff skófatnaður

Tina Kunakey er mikið í ljósum víðum kápum. Eins er hún fyrir ljósar peysur og yfirflíkur í stórum stærðum. Þegar hún klæðist kápunum er hún vanalega djörf þegar kemur að skóvali. Eins getur hún látið hefðbundna Timberland-skó passa vel við hátískufatnað af bestu gerð. 

Að blanda saman ólíkum merkjum og stílum er í hennar anda. Það býr til útlit sem er hvorki stíft né stílað. 

View this post on Instagram

#TimberlandCollective #CourmayeurValley @timberland_eu

A post shared by @ tinakunakey on Oct 23, 2017 at 7:30am PDT

Sundfatnaður

Tina Kunakey er mikið fyrir ströndina og velur sér vanalega baðfatnað sem er frekar öðruvísi. Prjónafatnaður á baðströndina var vinsælt á sjöunda áratug síðustu aldar. Hún gerir það útlit að sínu og skapar þannig nýja tískustefnu úr hefðbundnum hugmyndum. 

View this post on Instagram

lovely @morganelay 🦋

A post shared by @ tinakunakey on Aug 14, 2017 at 9:05am PDT

Rúllukragabolir

Þegar Tina Kunakey vil ná fram tímalausu útliti sléttir hún vanalega á sér hárið og dregur úr allri förðun. Þá klæðist hún vanalega mjúkum rúllukragapeysum og verður klassísk í anda stórstjarna á borð við Audrey Hepburn.

View this post on Instagram

🥜

A post shared by @ tinakunakey on Oct 30, 2018 at 5:49am PDT

Glitrandi kvöldkjólar

Tina Kunakey er annaðhvort í svörtum einföldum kvöldkjólum eða glitrandi áberandi kjólum og með stóra fylgihluti. Hún er með einstaklega fallega húð og glitrandi fatnaður passar vel við vaxtarlagið hennar sem er einstaklega kvenlegt. Það sem er áhugavert að sjá er að hún er vanalega mjög lítið máluð þegar hún klæðir sig svona, sem gerir útlitið sannfærandi og þannig fer hún aldrei yfir strikið. 

View this post on Instagram

miss me?

A post shared by @ tinakunakey on Oct 5, 2018 at 3:47am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál