Rekinn eftir kynþáttaníð

Lið Ægis á Egilsstöðum í dag. Brenton Muhammad er lengst …
Lið Ægis á Egilsstöðum í dag. Brenton Muhammad er lengst til vinstri. Ljósmynd/aegirfc.is

Höttur á Egilsstöðum hefur látið Búlgarann Georgi Stefanov fara frá félaginu eftir að hann sýndi kynþáttafordóma í garð leikmanns Ægis úr Þorlákshöfn þegar liðin mættust í 2. deild karla á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum. Þetta kemur fram á vefsíðunni fótbolti.net.

Stefanov gekk til liðs við Hött í júlí og var að leika sinn þriðja leik fyrir félagið. Sá sem varð fyrir kynþáttafordómunum var Brenton Muhammad, enskur markvörður Ægis.

Höttur gaf út yfirlýsingu vegna málsins. 

Sjórn Hattar rekstrarfélags ehf sem fer með rekstur meistararflokka félagsins í knattspyrnu harmar mjög atvik sem átti sér stað í leik Hattar og Ægis s.l. laugardag þar sem Georgi Stefanov leikmaður Hattar veittist að Brenton Muhammad leikmanni Ægis með niðrandi ummælum. Ummæli sem verða ekki skilin öðruvísi en kynþáttafordómar í garð Brenton.

Stjórnarmenn félagsins hafa rætt málið við viðkomandi leikmann sem hefur gengist við broti sínu. Leikmaðurinn er miður sín vegna framgöngu sinnar og veit að hann hefur engar málsbætur. Hann vill koma á framfæri afsökunarbeiðini sinni til Brenton.
Stjórn Hattar rekstrarfélags ehf biður Brenton Muhammad, leikmenn Ægis og aðstandendur félagsins innilega afsökunar á umræddu atviki. Einnig vil stjórnin biðja stuðningsmenn Hattar og stuðningsaðila afsökunar.

Frá því að Georgi Stefanov gekk til liðs við Hött hefur hann staðið sig mjög vel innan vallar sem utan og engan skugga borið á hans framkomu. Hann er mjög miður sín fyrir framferði sínu gagnvart Brenton. Það verður hins vegar ekki horft framhjá alvarleika brotsins og því hefur stjórn Hattar rekstrarfélags ehf ákveðið að Georgi Stefanov spili ekki fleiri leiki með félaginu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert