Frederik í markinu gegn Frökkum

Frederik Schram stendur í markinu.
Frederik Schram stendur í markinu. Ómar Óskarsson

Ísland og Frakk­land eig­ast við í undan­keppni Evr­ópu­móts U21-landsliða í knatt­spyrnu á Kópa­vogs­velli kl. 14. Byrjunarlið Íslands er klár og það má sjá hér að neðan.

Tvær breytingar eru á íslenska liðinu frá fyrsta leiknum í riðlinum gegn Makedóníu í júní. Frederik Schram stendur í markinu í stað Rúnar Alex Rúnarssonar sem er meiddur. Þá sest Daníel Leó Grétarsson á bekkinn en inn kemur Hjörtur Hermannsson.

Leikurinn er í beinni textalýsingu á mbl.is sem opna má HÉR.

Ísland U21: Frederik Schram (M), Hjörtur Hermannsson, Adam Örn Arnarson, Ævar Ingi Jóhannesson , Orri Sigurður Ómarsson, Aron Elís Þrándarson, Oliver Sigurjónsson , Elías Már Ómarsson, Böðvar Böðvarsson, Höskuldur Gunnlaugsson, Sindri Björnsson.
Varamenn: Ólafur Íshólm Ólafsson (M), Árni Vilhjálmsson, Viktor Jónsson , Þorri Geir Rúnarsson, Daníel Leó Grétarsson, Heiðar Ægisson, Kristján Flóki Finnbogason.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert