Meistararnir í undanúrslit

Þór/KA er komið í undanúrslit.
Þór/KA er komið í undanúrslit. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Íslandsmeistarar Þórs/KA eru komnir í undanúrslit Lengjubikars kvenna í fótbolta eftir 3:1-sigur á FH í Boganum í dag. Margrét Árnadóttir, Anna Rakel Pétursdóttir og Hulda Ósk Jónsdóttir skoruðu mörk Þórs/KA.

Marjani Hing-Glover lagaði stöðuna á 80. mínútu en það dugði ekki til og FH féll úr leik. Valur er í efsta sæti riðilsins með 10 stig, Breiðablik í 2. sæti með átta sig og svo Þór/KA með sjö stig. Í fjórða sætinu kemur Stjarnan með sex stig. FH og ÍBV reka lestina með þrjú stig hvort. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert