Bjarkaleikur Kópavogsliðanna á morgun

Bjarki Már Sigvaldason í miðjum hópi leikmanna HK og Breiðabliks …
Bjarki Már Sigvaldason í miðjum hópi leikmanna HK og Breiðabliks eftir styrktarleik liðanna í nóvember 2018. mbl.is/Hari

Kópavogsfélögin HK og Breiðablik ætla að minnast Bjarka Más Sigvaldasonar og styrkja samtökin Ljónshjarta þegar þau mætast í fotbolti.net-mótinu í meistaraflokki karla í fótbolta í Kórnum á morgun.

Félögin hafa ákveðið að leikurinn muni bera nafnið Bjarkaleikur og hafa í samráði við Ástrós Rut Sigurðardóttur, ekkju Bjarka, sett sér að spila sérstakan leik árlega þar sem selt verði inn og ágóðinn renni óskertur í gott málefni sem ákveðið er hverju sinni. Ljónshjarta er samtök fyrir ungt fólk sem misst hefur maka, og börn þess.

Bjarki Már Sigvaldason í leik með HK gegn ÍA.
Bjarki Már Sigvaldason í leik með HK gegn ÍA. mbl.is/Golli


Bjarki Már lést í júní 2019 eftir sjö ára baráttu við krabbamein en hann var 32 ára gamall og lék með HK til ársins 2012 þegar hann veiktist fyrst.

Leikurinn hefst klukkan 11.15 í Kórnum á morgun en þetta er fyrsti mótsleikur ársins hjá liðunum. Aðgangseyririnn er í formi frjálsra framlaga við innganginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert