Sá markahæsti með nýjan samning við KA

Elfar Árni Aðalsteinsson í leik með KA.
Elfar Árni Aðalsteinsson í leik með KA. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knattspyrnumaðurinn Elfar Árni Aðalsteinsson skrifaði í dag undir nýjan samning við KA  til næstu tveggja ára og leikur því áfram með Akureyrarliðinu út tímabilið 2022.

Þetta kemur fram á heimasíðu KA. Elfar Árni missti alveg af yfirstandandi keppnistímabili eftir að hafa slitið krossband í hné snemma á árinu.

Hann hefur leikið með KA frá 2015 og er markahæsti leikmaðurinn í sögu félagsins í efstu deild með 27 mörk. Þá  skoraði hann 22 mörk fyrir liðið á tveimur árum í 1. deild tvö fyrstu tímabilin með félaginu.

Elfar er annars Húsvíkingur og lék með Völsungi til 2011 en með Breiðabliki frá 2012 til 2014. Hann hefur samtals spilað 250 deildaleiki á ferlinum og skorað í þeim 99 mörk, þar af eru 110 leikir og 39 mörk í efstu deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert