Kanadískur framherji til Vals

Anna Rakel Pétursdóttir og Elín Metta Jensen leika með Val …
Anna Rakel Pétursdóttir og Elín Metta Jensen leika með Val og þær hafa fengið liðsauka frá Kanada. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Valskonur hafa fengið liðsauka fyrir baráttuna í fótboltanum í sumar en kanadíski framherjinn Clarissa Larisey er komin í þeirra raðir.

Larisey kemur beint úr bandaríska háskólafótboltanum þar sem hún hefur leikið með Memphis-háskóla við góðan orðstír undanfarin ár. Í tilkynningu Vals segir að Larisey sé fjölhæfur leikmaður sem geti leyst margar stöður fram á við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert