Karen með sigurmarkið á Hásteinsvelli

Delaney Baie Pridham skorar fyrsta mark Íslandsmóts kvenna 2021 fyrir …
Delaney Baie Pridham skorar fyrsta mark Íslandsmóts kvenna 2021 fyrir ÍBV gegn Þór /KA Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Akureyringarnir í Þór/KA hófu Íslandsmót kvenna í knattspyrnu eins og best verður á kosið í kvöld og sigruðu ÍBV 2:1 í fyrstu umferð Pepsi Max-deildar kvenna á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.

Delaney Baie Pridham skoraði fyrsta mark deildarinnar í ár þegar hún kom ÍBV yfir með skallamarki á 12. mínútu eftir að Kristjana Sigurz átti góða fyrirgjöf frá hægri.

Hulda Ósk Jónsdóttir jafnaði metin fyrir Þór/KA á 66. mínútu þegar hún skaut nánast frá endalínu en boltinn skrúfaðist í markhornið fjær, 1:1.

Sigurmarkið skoraði síðan Karen María Sigurgeirsdóttir á 81. mínútu þegar hún stal boltanum af leikmanni ÍBV og lagði hann snyrtilega framhjá Auði Scheving í Eyjamarkinu.

ÍBV 1:2 Þór/KA opna loka
92. mín. Leik lokið Þór/KA fer frá Eyjum með þrjú stig í dag.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert