Heilladísirnar ekki á okkar bandi

Keflavík leitar enn að fyrsta sigrinum í sumar.
Keflavík leitar enn að fyrsta sigrinum í sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gunnar M. Jónsson þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í Pepsi Max-deildinni sagði það vissulega gríðarleg vonbrigði að hafa tapað á lokamínútum leiks gegn ÍBV í kvöld.  Gunnar sagði lukkudísirnar einfaldlega ekki hafa verið á bandi síns liðs síðustu misseri og bætti við að hans lið hafi unnið vel fyrir sínu í dag en meira segja það dugði ekki til stundum. 

Gunnar sagði í raun sitt lið hafa skorað tvisvar í lokasókn leiksins og að rangstöðudómur hafi hlotið skiptar skoðanir og að honum hafi fundist þetta undarlegt allt saman.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert