Fyrsta deildin?

Spila Breiðablik og Víkingur í Fyrstu deildinni á næsta tímabili?
Spila Breiðablik og Víkingur í Fyrstu deildinni á næsta tímabili? Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason

Uppi eru hugmyndir um að hætta að kenna efstu deildirnar í fótboltanum hér á landi við ákveðna styrktaraðila. Þær fái í staðinn öflugt og gott nafn til frambúðar en styrktaraðilar komi sínum boðskap á framfæri á annan hátt í tengslum við viðkomandi deildir.

Þetta eru ánægjuleg tíðindi. Við þurfum ekki annað en að horfa til Premier League á Englandi, Lique 1 í Frakklandi, Serie A á Ítalíu, La Liga á Spáni og Bundesliga 1 í Þýskalandi til að sjá að þar eru ekki gosdrykkir eða tryggingar aðalmálið. Án þess að gert sé lítið úr mikilvægi styrktaraðila fyrir deildirnar og íþróttirnar.

Ég hef heyrt nafninu „Besta deildin“ fleygt. Þá er það orðið svipað og hjá grönnum okkar í Færeyjum sem nota „Betri Deildin.“ Sem er víst samt auglýsing! Ég legg því til að efsta deild karla og kvenna verði framvegis kölluð „Fyrsta deildin.“ Einfalt og gott, og um leið snúið aftur til gamla og góða tímans þegar 1. deild var efsta og besta deildin.

Bakvörðurinn í heild sinni er í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert