Ánægður að taka stigin þrjú

Birkir Heimisson leikmaður Vals sagðist vera temmilega sáttur með að ná þremur stigum í kvöld suður með sjó þegar Keflavík og Valur mættust í Bestu deildinni í fótbolta.

Lokatölur urðu 1:0 en nafni hans Birkir Már Sævarsson skoraði sigurmarkið.

Birkir sagði að sínir menn hefðu dottið óþarflega mikið til baka í seinni hálfleik. Birkir sagði að hans menn hefðu verið viðbúnir hörkunni frá Keflvíkingum þetta kvöldið.  

Sindri Þór Guðmundsson og Birkir Heimisson eigast við.
Sindri Þór Guðmundsson og Birkir Heimisson eigast við. Ljósmynd/Kristinn Steinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert