16. umferð: Sló markamet félagsins

Murielle Tiernan er í stóru hlutverki hjá Tindastóli.
Murielle Tiernan er í stóru hlutverki hjá Tindastóli. Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson

Murielle Tiernan er orðin markahæsti leikmaður Tindastóls í efstu deild með 6 mörk en hún gerði annað markanna í sigrinum á Þrótti í Laugardal, 2:0. Hún fór einu marki fram úr Aldísi Maríu Jóhannsdóttur.

Andrea Mist Pálsdóttir skoraði sitt 20. mark í efstu deild þegar Stjarnan vann Breiðablik í gærkvöld, 4:2.

Beatriz Parra skoraði fyrra mark Tindastóls í leiknum gegn Þrótti og það var hennar fyrsta mark í deildinni.

Selfyssingurinn Grace Sklopan skoraði sitt fyrsta mark í deildinni þegar Selfoss tapaði 1:3 fyrir FH á heimavelli.

Valskonan Lise Dissing skoraði sitt fyrsta mark í deildinni þegar Valur vann Þór/KA 3:2 á Akureyri.

Telusila Vunipola lék sinn fyrsta leik í deildinni með ÍBV þegar liðið vann Keflavík, 1:0, á Hásteinsvelli.

Hulda Þórey Halldórsdóttir úr Tindastóli lék sinn fyrsta leik í deildinni gegn Þrótti.

Bryndís Arna Níelsdóttir er áfram langmarkahæst í deildinni með 13 mörk fyrir Val þó hún hafi ekki skorað í þremur síðustu leikjum liðsins. Blikarnir Agla María Albertsdóttir og Linli Tu koma næstar með sjö mörk hvor.

Úrslit­in í 16. um­ferð:
ÍBV - Kefla­vík  1:0
Þór/​KA - Val­ur 2:3
Þrótt­ur R. - Tinda­stóll 0:2
Sel­foss - FH 1:3
Stjarn­an - Breiðablik 4:2

Marka­hæst­ar:
13 Bryn­dís Arna Ní­els­dótt­ir, Val
7 Agla María Al­berts­dótt­ir, Breiðabliki
7 Linli Tu, Kefla­vík/​​Breiðabliki
6 Andrea Rut Bjarna­dótt­ir, Breiðabliki
6 Katrín Ásbjörns­dótt­ir, Breiðabliki
6 Sandra María Jessen, Þór/​​​​​​​​​​​​​KA
5 Birta Georgs­dótt­ir, Breiðabliki
5 Freyja Karín Þor­varðardótt­ir, Þrótti

5 Katla Tryggva­dótt­ir, Þrótti
5 Shaina Ashouri, FH
5 Tanya Boychuk, Þrótti
4 Ásdís Karen Halldórsdóttir Val
4 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Stjörnunni
4 Holly O'­Neill, ÍBV
4 Jasmín Erla Ingadóttir, Stjörnunni
4 Karen María Sigurgeirsdóttir, Þór/KA
4 Mel­issa Garcia, Tinda­stóli
4 Murielle Tiernan, Tindastóli
4 Olga Sevcova, ÍBV
4 Sierra Marie Lelii, Þrótti 
4 Tayl­or Ziemer, Breiðabliki
4 Þóra Björg Stefánsdóttir, ÍBV
4 Þór­dís Elva Ágústs­dótt­ir, Val

Næstu leik­ir:
20.8. FH - Stjarnan
20.8. Selfoss - Þór/KA
20.8. Breiðablik - ÍBV
20.8. Keflavík - Þróttur R.
20.8. Tindastóll - Valur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert