Fjögur ensk lið verða í pottinum þegar dregið verður til 16-liða úrslitanna í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu.
Liverpool og Tottenham tryggðu sér farseðilinn í 16-liða úrslitin í kvöld en áður höfðu Manchester City og Manchester United tryggt sér sæti í 16-liða úrslitunum.
15 lið eru komin áfram í 16-liða úrslitin en þau eru:
Liverpool
Tottenham
Manchester City
Manchester United
Barcelona
Dortmund
Atletíco Madrid
Paris SG
Porto
Schalke
Bayern München
Ajax
Roma
Juventus
Real Madrid
Shakhtar Donetsk og Lyon mætast í kvöld í úrslitaleik um að komast áfram. Shakhtar þarf sigur til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum.