Englandsmeistarar Manchester City endurheimta belgíska miðjumanninn Kevin de Bruyne þegar þeir sækja Crystal Palace heim í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardaginn.
De Bruyne missti af tveimur síðustu leikjum City fyrir landsleikjafríið vegna meiðsla í nára og hann lék ekki með Belgum í undankeppni EM.
Belginn snjalli er mættur aftur til æfinga hjá Manchester City og líklegt þykir að hann verði í byrjunarliðinu gegn Palace. Hann hefur skorað tvö mörk í deildinni á tímabilinu og er sá leikmaður sem hefur gefið flestar stoðsendingar eða átta talsins.
City er í öðru sæti deildarinnar, átta stigum á eftir Liverpool, en Crystal Palace er í sjötta sæti, tveimur stigum á eftir Englandsmeisturunum.