Vonast til að halda markaskoraranum

Mikel Arteta ræðir við Pierre-Emerick Aubameyang í leiknum við Everton …
Mikel Arteta ræðir við Pierre-Emerick Aubameyang í leiknum við Everton í dag. AFP

Mikel Arteta knattspyrnustjóri Arsenal kveðst vonast til þess að geta haldið framherjanum öfluga Pierre-Emerick Augameyang sem skoraði tvívegis í sigri liðsins á Everton í dag, 3:2, í ensku úrvalsdeildinni.

Aubameyang er þar með búinn að skora 19 mörk fyrir Arsenal á tímabilinu en hann er með samning til sumarsins 2021 og hefur verið orðaður við Barcelona sem er sagt hafa reynt að kaupa hann í janúar.

„Þeir eru alveg með rétt á því að vilja fá hann því hann er frábær leikmaður. Stóru liðunum líst vel á hann og vonandi tekst okkur að sannfæra hann um að vera um kyrrt. Ég veit að hann er með stórar væntingar, vill spila í stærstu keppnunum og með bestu leikmönnunum. Við verðum að hjálpa honum að ná því. Hann er tvímælalaust okkar mikilvægasti leikmaður og vonandi náum við að halda honum,“ sagði Arteta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert