Joe Willock skoraði enn og aftur fyrir Newcastle er liðið vann 1:0-sigur á botnliði Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Willock hefur verið óstöðvandi fyrir Newcastle síðan hann kom til félagsins frá Arsenal í janúar og er hann nú búinn að skora í sex leikjum í röð.
Sigurmarkið og önnur tilþrif úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.