Foden svaraði með glæsibrag (myndskeið)

Phil Foden, leikmaður Manchester City, jafnaði metin gegn Manchester United í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. 

Kom hann einnig City yfir seinna í leiknum en jöfnunarmark Fodens var glæsilegt. 

Fékk Foden boltann utan teigs og smellti honum í fjærhornið. 

Staðan er 2:1 fyrir Manchester City þegar rúmar sjö mínútur eru eftir. Leikurinn er í beinni texta­lýs­ingu á mbl.is.

Markið má sjá í spil­ar­an­um hér að ofan en mbl.is fær­ir ykk­ur efni úr enska bolt­an­um í sam­vinnu við Sím­ann Sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka