Kærir Epic Games fyrir stuld

Fortnite.
Fortnite. Grafík/Epic Games/Fortnite

Danshöfundurinn Kyle Hanagami kærir tölvuleikjafyrirtækið Epic Games fyrir að notast við danshreyfingu sem minnir á einn af dönsunum hans.

Danshreyfingin „It's Complicated“ frá Fortnite ber sterkan svip frá höfundarvarinni danshreyfingu sem Hanagami bjó til. Danshreyfinguna er að finna í YouTube-myndbandi frá Hanagami sjálfum en myndbandið býr að tæplega 36 milljón áhorfum.

Epic Games er því ásakað um að stela danshreyfingu frá Hanagami án þess að hafa fengið nokkurt leyfi fyrir því að nota hana.

Hanagami fer fram á að danshreyfingin verði tekin úr leiknum og að fyrirtækið greiði fyrir lögfræðikostnað auk óskilgreinda skaðabóta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert