Virkja hestaham vegna 1. apríl

Hægt er að spila í hestaham í Among Us vegna …
Hægt er að spila í hestaham í Among Us vegna 1. apríl. Grafík/Innersloth

Gamalt jarm um Among Us varð að raunveruleika í dag sem fyrsta aprílsgabb en geta leikmenn þess leiks spilað í ákveðnum „hestaham“ á meðan fyrsta apríl stendur, samkvæmt PCGamesN.

Mörg fyrirtæki hafa látið af því að gabba fólk til þess að hlaupa á þessum degi og í staðinn tekið upp einhverskonar kjánaskap. Innersloth er eitt af þeim fyrirtækjum sem nýta daginn í kjánaskap og innleiddu þennan hestaham sem aðeins verður hægt að spila í dag.

Forritarinn Gary hneggjar

Hestahamurinn er spilanlegur núna og munu leikmenn sjá persónur samspilara sinna breytast í hesta-útgáfu af Among Us-persónu.

Auk nýja útlits Among Us-persónanna fá „morðingjarnir“ í leiknum einstaka hreyfimynd þegar drepið er auk hneggs.

Þróunaraðilar segja hneggið hafa verið tekið upp af forritaranum Gary. Það var upphaflega gert í gríni og átti að vera notað sem staðgenglahljóð þangað til að raunverulegt hljóð fengist, en fljótlega tóku þeir ákvörðun um að þetta væri „miklu betra svona“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert