Rafíþróttasamtök Íslands, RÍSÍ, hefur gert samstarfssamning við Esports Coaching Academy um dreifingu á æfinga- og stuðningsefni sem aðstoðar rafíþróttaþjálfara.
Esports Coaching Academy, eða ECA, er ungt íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og dreifingu á stuðningsefni fyrir rafíþróttastarf ungmenna.
Nú þegar er félagið að vinna með félögum, fyrirtækjum og skólum í Bandaríkjunum og Púertó Ríkó.
Tryggir faglegt og gott starf
„Með þessu samstarfi tryggjum við enn betur gæði æskulýðsstarfs á Íslandi sem er nú þegar með því allra besta sem þekkist.
Æfingakerfi ECA leysir vanda sem við höfum verið að kljást við þegar kemur að því að veita þjálförum áframhaldandi stuðning eftir að þeir ljúka þjálfaranámskeiði RÍSÍ.
ECA veitir þjálfurum aðgang að æfingagagnagrunni sem tryggir að á hverri æfingu fer fram faglegt og gott starf,” segir Aron Ólafsson, framkvæmdarstjóri RÍSÍ.
Ekki bara tölvuleikir
Þannig hefur félagið útfært æfingar sem henta aldri, getustigi og hópasamsetningu sem snert á líkamlegum æfingum, æfingum í leikjunum sjálfum ásamt æfingum utan tölvunnar sem byggja upp færni sem kemur sér vel í rafíþróttum.
Þar má nefna samskipti, leiðtogafærni, snerpu, liðleika, styrk og traust.
Íslenski draumurinn
Haraldur Hugosson, framkvæmdarstjóri ECA segir að það sé draumur að fá að vinna með RÍSÍ að áframhaldandi uppbyggingu ungmennastarfs í rafíþróttum á Íslandi.
„Það starf sem hefur hingað til verið unnið hefur vakið athygli víðsvegar um heiminn og það er von okkar að með miðlægu fræðslu- og stuðningstóli ECA geti íslensk félög bætt um betur og haldið áfram að vera leiðandi afl í rafíþróttum barna og ungmenna á heimsvísu.“
Með samkomulagi RÍSÍ og ECA verður RÍSÍ eini viðurkenndi endursölu- og dreifingaraðili á efni ECA á Íslandi.