Er ekki með Meistaradeildina á heilanum

Buffon er mættur til París.
Buffon er mættur til París. AFP

Ítalski markmaðurinn Gianluigi Buffon segist ekki vera með Meistaradeild Evrópu á heilanum. Buffon, sem er orðinn fertugur, hefur unnið flest allt sem hægt er að vinna sem fótboltamaður, en ekki Meistaradeild Evrópu.

Buffon gerði eins árs samning við Frakklandsmeistara Paris Saint-Germain á dögunum eftir 17 ár hjá Juventus. Hann segist ekki hafa skipt yfir til Frakklands til að vinna Meistaradeildina. 

„Ég vonast til að geta hjálpað PSG að vaxa innan vallar svo við getum stefnt að enn betri hlutum. Það eru miklir hæfileikar í þessu liði en það hefur ekki tekist að vinna Meistaradeildina.

Vonandi tekst það núna, en ég er ekki bara að hugsa um hana. Ég er ekki með hana á heilanum eins og sumir halda,“ sagði Buffon á fréttamannafundi í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert