Kristrún spilar með Roma á næstu leiktíð

Kristrún Rut Antonsdóttir hefur skorað eitt mark í sjö leikjum …
Kristrún Rut Antonsdóttir hefur skorað eitt mark í sjö leikjum með Selfyssingum í sumar. mbl.is/Guðmundur Karl

Selfyssingurinn Kristrún Rut Antonsdóttir mun spila með Roma í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu á næstu leiktíð. Kristrún spilaði með B-deildarliði Chieti á síðustu leiktíð þar sem hún skoraði 5 mörk í 17 leikjum. Roma eru nýliðar í deildinni en það er Elisabetta Bavagnoli sem þjálfar liðið en hún á að baki 90 landsleiki fyrir Ítalíu.

Hún hefur spilað sjö leiki með Selfyssingum í Pepsi-deildinni í sumar þar sem hún hefur skorað eitt mark. Þessi 23 ára gamli leikmaður á að baki 93 leiki fyrir Selfoss þar sem hún hefur skorað 14 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert