Celtic áfram á kostnað Rosenborg

Guðjón Pétur Lýðsson og Anders Trondsen í baráttunni er Rosenborg …
Guðjón Pétur Lýðsson og Anders Trondsen í baráttunni er Rosenborg sló út Val í fyrstu umferðinni. Ljósmynd/NTB scanpix

Celtic er komið áfram í 3. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu eftir markalaust jafntefli í Noregi gegn Rosenborg í síðari leik liðanna. Celtic vann fyrri leikinn í Skotlandi 3:1.

Matthías Vilhjálmsson kom inn af varamannabekknum um stundarfjórðungi fyrir leikslok en honum tókst ekki að setja mark sitt á leikinn, frekar en öðrum sóknarmönnum Rosenborg.

Celtic mætir grísku meisturunum í AEK í næstu umferð en Matthías og félagar fara nú í 3. umferð Evrópudeildarinnar. Þar mæta þeir Cork City frá Írlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert