Rabiot á leið frá PSG?

Adrien Rabiot skoraði í sigri PSG á Caen um helgina.
Adrien Rabiot skoraði í sigri PSG á Caen um helgina. AFP

Framtíð franska knattspyrnumannsins Adrien Rabiot er í mikilli óvissu en lítið hefur gengið í samningaviðræðum milli hans og PSG. Samningur Rabiot rennur út næsta sumar og því er ekki ólíklegt að PSG taki til þess ráðs að selja hann. Barcelona, Juventus og Chelsea hafa öll verið orðuð við hann undanfarnar vikur. 

Þjálfari PSG, Thomas Tuchel, sagðist eftir sigur PSG á Caen í frönsku úrvalsdeildinni meta Rabiot mikils og að hann vildi hafa hann áfram í sínu liði: „Ég vill að hann sé um kyrrt. Hann er leikmaður sem kom upp í gegnum unglingastarfið og hann er mikilvægur hlekkur í liðinu. Ég er ekki viss um að hann verði hér áfram. Það veltur allt á honum."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert