Norska undrabarnið til Hollands

Martin Ødegaard hefur skrifað undir lánssamning við Vitesse Arnhem.
Martin Ødegaard hefur skrifað undir lánssamning við Vitesse Arnhem. AFP

Knattspyrnumaðurinn Martin Ødegaard er genginn til liðs við hollenska félagið Vitesse Arnhem en þetta var tilkynnt í dag. Ødegaard skrifar undir eins árs lánssamning við hollenska félagið sem leikur í úrvalsdeildinni þar í landi.

Ødegaard er einungis 19 ára gamall en hann gekk til liðs við Real Madrid árið 2015, þá 16 ára gamall. Hann spilaði sinn fyrsta deildarleik fyrir félagið árið 2017. Hann eyddi síðasta tímabili á láni hjá Heerenveen í Hollandi þar sem hann skoraði 3 mörk í 38 deildarleikjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert