Landsliðskonurnar Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir voru í sigurliði Adelaide United þegar það hrósaði 2:0 sigri gegn Canberra í áströlsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í morgun.
Gunnhildur Yrsa lék allan tímann á miðjunni og Fanndís lék á vinstri kantinum allt fram á 88. mínútu þegar henni var skipt út af í stöðunni 2:0. Báðar voru nálægt því að skora í leiknum. Gunnhildur átti skot rétt fram hjá markinu eftir sendingu frá Fanndísi og Fanndís átti gott skot sem fór naumlega fram hjá stönginni.
Hin bandaríska Veronica Latsko skoraði fyrra markið á 27. mínútu en það síðara var sjálfsmark á 85. mínútu leiksins en fyrra markið má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.
Adelaide United hefur farið vel af stað en eftir þrjá leiki er liðið með 7 stig í 1.-2. sæti og er með markatöluna 3:0.
Advantage @AUFCWomen!@V_Latsko12 has her second goal in as many weeks after great work from @Mheyman23. #WLeague #FemaleFootballRound
— Westfield W-League (@WLeague) November 22, 2018
🎥 @FOXFOOTBALL pic.twitter.com/06PDUSAz0Q