Real Madrid slapp áfram en Atlético úr leik

Real Madrid tapaði en fór samt áfram.
Real Madrid tapaði en fór samt áfram. AFP

Evrópumeistarar Real Madrid eru komnir áfram í átta liða úrslit spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu þrátt fyrir 1:0 tap gegn Leganés á útivelli í kvöld. Real vann fyrri leikinn 3:0 og einvígið samtals 3:1.

Grannar Real í Atlético Madrid eru hins vegar úr leik eftir einvígi sitt við Girona. Liðin skildu jöfn 1:1 á heimavelli Girona en lokatölur á heimavelli Atlético í kvöld urðu 3:3. Girona fór því áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Þá slapp Sevilla einnig áfram þrátt fyrir tap gegn Athletic, 1:0, en Sevilla vann fyrri leikinn 3:1.

Áður höfðu Getafe og Valencia tryggt sér sæti í átta liða úrslitum. Þrjú einvígi klárast á morgun. Það eru viðureignir Espanyol og Villarreal, Barcelona og Levante auk Real Sociedad og Real Betis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert