Arnór skoraði tvö á Spáni

Arnór Sigurðsson er að slá í gegn með CSKA Moskvu.
Arnór Sigurðsson er að slá í gegn með CSKA Moskvu. AFP

Arnór Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir CSKA Moskvu er liðið vann FC Cartagena, topplið 4. riðils í C-deild Spánar, 3:1 í æfingaleik í fótbolta. Hörður Björgvin Magnússon lék einnig með CSKA í leiknum. 

Arnór hefur staðið sig afar vel með CSKA síðan hann kom til félagsins frá Norrköping í sumar. CSKA er í þriðja sæti rússnesku úrvalsdeildarinnar með 30 stig eftir 17 leiki. 

Rússneska deildin fer aftur af stað í byrjun mars og spilar CSKA einn æfingaleik til viðbótar fyrir það, gegn Arsenal Tula, sem einnig spilar í rússnesku úrvalsdeildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert