Kjartan Henry Finnbogason skoraði eina mark Vejle þegar liðið tapaði fyrir Nordsjælland 3:1 á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Kjartan Henry kom inná á 46. mínútu og minnkaði muninn fyrir sína menn á lokamínútu leiksins.
Vejle er í næstneðsta sæti deildarinnar með 19 stig eftir 23 leiki en Nordsjælland er í 5. sætinu.