Frábært sigurmark Mahrez (myndskeið)

Riyad Mahrez fagnar marki sínu.
Riyad Mahrez fagnar marki sínu. AFP

Riyad Mahrez, leikmaður Manchester City, skoraði frábært mark þegar hann tryggði Alsír farseðilinn í úrslitaleikinn í Afríkukeppninni í fótbolta eins og fram kom á mbl.is í gærkvöld.

Alsír hafði betur gegn Nígeríu 2:1 og skoraði Mahrez sigurmarkið með skoti beint úr aukaspyrnu á fimmtu mínútu í uppbótartíma en markið má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

Alsír mætir Senegal í úrslitaleiknum í Kaíró á föstudagskvöldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert