Stórglæsilegt mark Bjarna (myndskeið)

Bjarni Mark Antonsson skoraði afar fallegt mark.
Bjarni Mark Antonsson skoraði afar fallegt mark. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Bjarni Mark Antonsson, knattspyrnumaður hjá Brage í Svíþjóð, skoraði magnað mark í 2:2-jafntefli við Trelleborg í dag. Bjarni er í mikilvægu hlutverki hjá Brage sem er í hörðum slag um að komast upp í efstu deild. 

Bjarni, sem fór til Brage frá KA, skoraði fyrra mark liðsins er hann jafnaði í 1:1 á 53. mínútu. Bjarni gerði sér lítið fyrir og skoraði með fallegri hjólhestaspyrnu. 

Þetta afskaplega huggulega mark má sjá hér fyrir neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert